Stefnumót við gervigreind
Stakkahlíð / Háteigsvegur
Klettur
Menntavísindasvið Háskóla Íslands í samstarfi við skóla - og frístundasvið Reykjavíkurborgar býður þér á Stefnumót við gervigreind fimmtudaginn 21. nóvember kl. 14:30-16:30.
Aðgangur er ókeypis en óskað eftir skráningu: https://forms.office.com/e/EE2FSHVjsB.
Á stefnumótinu kynnumst við því hvernig gervigreindin getur nýst í menntun og skoðum hagnýtingu hennar, tækifæri og takmörk. Stefnumótið er ætlað öllum sem koma að menntun á öllum skólastigum. Viltu kynnast því hvernig nemendur, kennarar og annað skólafólk nýtir sér gervigreindina? Taktu þátt í umræðu um hvernig gervigreindin breytir námi og hvernig hún er nú þegar farin að nýtast í menntun.
Stefnt er á gleðistund í Tónabíó, Skipholti 33 eftir að dagskrá lýkur, þar sem hægt er að fá veigar á góðu verði.Stefnumótið skiptist í tvennt:
14:30 - 15:30 Menntabúðir (Klettur, Menntavísindasvið HÍ)
Menntabúðir er samkoma þar sem fólk kemur saman til að miðla af eigin reynslu og þekkingu og afla sér fróðleiks frá öðrum þátttakendum. Samtal er í aðalhlutverki í menntabúðum.
Öll geta boðið upp á kynningu en það er ekki skilyrði til þátttöku.1
15:30- 16:30: Erindi og vinnustofur (Klettur, Menntavísindasvið HÍ og í streymi)-
Tæknilæsi og gagnrýnin hugsun: Að nota gervigreind með
nemendum á ábyrgan hátt - Hróbjartur Árnason, Menntavísindasvið HÍ (vinnustofa í K-206 og á Teams)-Grunnur að gervigreind í kennslu - Bryngeir Valdimarsson, Ölduselsskóli og Þorbjörg St. Þorsteinsdóttir, Mixtúra (erindi í K-207 og á Teams)-Hagnýting gervigreindar í skólastarfi - Loftur Árni Björgvinsson, Fjölbrautaskóli Snæfellinga (vinnustofa á Teams)Ítarlegra yfirlit yfir kynningar á menntabúðum og erindin/vinnustofur má finna hér: https://bit.ly/stefnumot_vid_gervigreind
*Hlekkir á Teams verða sendir á skráða þátttakendurFyrirspurnir sendast á: unnurbjork@hi.is og/eða mixtura@reykjavik.is