Skip to main content

HÍ og heimsmarkmiðin - Ofbeldi og vopnaburður meðal barna og ungmenna á Íslandi

HÍ og heimsmarkmiðin - Ofbeldi og vopnaburður meðal barna og ungmenna á Íslandi - Available at University of Iceland
When 
Wed, 27/11/2024 - 12:00 to 13:30
Where 

Aðalbygging

Hátíðasalur

Further information 
Free admission

Háskóli Íslands hrindir af stað nýrri lotu í viðburðaröð um brýnustu verkefni og áskoranir sem þjóðir heims standa frammi fyrir. Í þetta sinn er sjónum beint að heimsmarkmiði sextán um frið og réttlæti. Það fjallar m.a. um að draga skuli verulega úr hvers kyns ofbeldi.

  • Haldið í Hátíðasal Háskóla Íslands, 27. nóvember frá 12 til 13.30.
  • Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, tekur þátt í viðburðinum.
  • Margrét Valdimarsdóttir, dósent í félags- og afbrotafræði við HÍ, mun beina sjónum að ofbeldi meðal ungmenna og barna sem snertir lýðheilsu og vellíðan í breiðum skilniningi.
  • Öll aðildarríki Sameinuðu þjóðanna hafa samþykkt að innleiða sautján heimsmarkmið sem takast á við stærstu verkefni samtímans.
  • Mikilvægt er að sérfræðiþekking og rannsóknir nýtist til lausnar á þeim viðamiklu verkefnum sem heimsmarkmiðin lýsa og einfaldi samfélögum að takast á við víðtækar áskoranir.
  • Háskóli Íslands einsetur sér að þekkingarsköpun og rannsóknir við skólann hafi víðtæk áhrif.

Eitt heimsmarkmið verður tekið fyrir í hverri viðburðalotu þar sem öflugum fræðimönnum, frá öllum fræðasviðum Háskóla Íslands, verður teflt fram til að kryfja og ræða markmiðin, vandamálin og áskoranirnar sem þeim tengjast frá sem flestum hliðum.

Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun eru samþætt og órjúfanleg og mynda jafnvægi milli þriggja stoða sjálfbærrar þróunar; hinnar efnahagslegu, félagslegu og umhverfislegu. Þau fela í sér fimm meginþemu sem eru mannkynið, jörðin, hagsæld, friður og samstarf. Heimsmarkmiðin voru samþykkt af fulltrúum allra aðildarríkja Sameinuðu þjóðanna árið 2015. Þau taka bæði til innanlandsmála og alþjóðasamstarfs.

Öll velkomin á meðan húsrúm leyfir.

Streymt verður frá viðburðinum.

Hér vantar að setja inn myndatexta í Uglu

HÍ og heimsmarkmiðin - Ofbeldi og vopnaburður meðal barna og ungmenna á Íslandi