Want to work with us?

The University of Iceland is one of the country's largest employers. We rely on a diverse team of employees to provide quality education and conduct impactful academic research. We aim to foster a vibrant community, enhancing our position as a leading educational institution.

Surveys indicate that UI employees enjoy high levels of job satisfaction, good morale and opportunities for advancement.

Benefits include professional development, social events, sabbaticals and health services such as annual flu vaccinations and UI wellbeing hub.

Wellbeing hub (for staff only).

Vacancies
Click the headline below to apply - No headline means no vacancies at the moment.


Applications are submitted online on the Icelandic State Recruitment (ISR) website. You can switch the language to English by clicking the flag at the top right corner. If you haven't registered yet, start by creating an account before signing in.

Lektor í alþjóðlegum menntunarfræðum

Laust er til umsóknar fullt starf lektors í alþjóðlegum menntunarfræðum við Deild menntunar og margbreytileika við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Starfsskyldur lektorsins eru kennsla og rannsóknir á sviði menntunarfræða með áherslu á margbreytileika á breiðum grundvelli og í samstarfi við starfsfólk annarra deilda Menntavísindasviðs. Auk þess tekur lektorinn þátt í stjórnun innan deildar. Námið er kennt á ensku, fer fram í staðnámi og koma flestir nemendur frá löndum utan Íslands.Lögð er áhersla á að lektorinn hafi sérþekkingu og skýra framtíðarsýn á einhverjum eftirtalinna sviða þegar kemur að kennslu og rannsóknum: gagnrýnin menntunarfræði, alþjóðleg og samanburðarmenntunarfræði, menntun til sjálfbærrar þróunar, félagslegt réttlæti í menntun, heimspeki og félagsfræði menntunar. 

Field of work

  • Kennsla á grunn- og meistarastigi í alþjóðlegu námi í menntunarfræðum
  • Leiðsögn lokaverkefna grunn- og framhaldsnema
  • Rannsóknir á fræðasviðinu
  • Stjórnun innan deildar sem m.a. felur í sér þátttöku í nefndarstörfum og deildarfundum
  • Samstarf á sviði alþjóðlegra menntunarfræða, bæði innanlands og á alþjóðlegum vettvangi

Qualification requirements

  • Doktorspróf í menntunarfræðum, heimspeki menntunar, félagsfræði menntunar eða öðrum greinum menntavísinda en með skýra alþjóðlega tengingu
  • Rannsóknavirkni á sviði menntunarfræði, sem kemur m.a. fram í fjölda birtinga á ritrýndum vettvangi
  • Reynsla af háskólakennslu í fjölbreyttu námsumhverfi er kostur
  • Góð samstarfshæfni og lipurð í mannlegum samskiptum
  • Góð enskukunnátta, bæði í rituðu og töluðu máli 
  • Íslenskukunnátta

Horft verður til þess að umsækjendur falli sem best að aðstæðum og þörfum námsbrautar, deildar og sviðsins í heild.

Application process

Gert er ráð fyrir að ráðið verði starfið frá 1. júlí 2026 eða samkvæmt nánara samkomulagi, þó ekki fyrr en lokið er störfum þeirra nefnda sem um ráðninguna munu fjalla.

Ráðið verður í starfið til fimm ára, með möguleika á ótímabundinni ráðningu að þeim tíma liðnum sbr. 3. mgr. 31. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009. 

Um meðferð umsókna, mat á hæfi umsækjenda og ráðningu í starfið er farið eftir ákvæðum laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla og reglna um Háskóla Íslands nr. 569/2009.

Umsækjendur skulu láta eftirfarandi gögn fylgja umsókn sinni.  

  1. Kynningarbréf þar sem m.a. kemur fram hvernig umsækjandi uppfyllir hæfniskröfur 
  2. Prófskírteini eða eftir atvikum vottorð um námsferil 
  3. Akademíska ferilskrá (Curriculum Vitae) 
  4. Ritaskrá
  5. Skýrslu um vísindastörf og önnur störf sem þeir hafa unnið
  6. Greinargerð um rannsóknar- og kennsluáform ef til ráðningar kemur
  7. Upplýsingar um mögulega umsagnaraðila sem hafa má samband við

Í umsókn skal koma fram hver ritverka sinna, allt að átta talsins, umsækjandi telur veigamest með tilliti til þess starfs sem um ræðir. Umsækjandi sendir eingöngu þessi ritverk sín með umsókn eða vísar til þess hvar þau eru aðgengileg á rafrænu formi. Þegar fleiri en einn höfundur stendur að innsendu ritverki skulu umsækjendur gera grein fyrir framlagi sínu til verksins. Umsóknargögnum sem ekki er hægt að skila rafrænt skal skila í tvíriti til vísinda- og nýsköpunarsviðs Háskóla Íslands, Sæmundargötu 2, 101 Reykjavík.

Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknarfrests.

Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans. Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.

Háskóli Íslands hefur frá stofnun verið undirstaða atvinnulífs og framfara í íslensku samfélagi. HÍ er jafnframt framsækinn rannsóknarháskóli og virkur þátttakandi í alþjóðlegu vísindasamstarfi.

Háskóli Íslands er stærsti háskóli landsins og býður upp á hátt á 400 námsleiðir á grunn-, meistara- og doktorsstigi. Um 14.000 nemendur stunda nám við skólann, þar af yfir 2.000 alþjóðlegir nemar.

Við Háskóla Íslands starfa yfir 1.800 manns. Skólinn leggur áherslu á að laða til sín fjölbreyttan hóp starfsfólks og stúdenta í alþjóðlegt fræðasamfélag þar sem akademískt frelsi, fagmennska, jafnrétti, fjölbreytileiki og inngilding eru í öndvegi.

Nánar um Háskóla Íslands, fræðasvið hans og deildir

Application deadline

Application deadline is 19.03.2026

For further information contact

Berglind Rós Magnúsdóttir

brm@hi.is

846 7514

Apply now

Share

Did this help?

Why wasn't this information helpful

Limit to 250 characters.